Kannt þú að raka?
23.08.2007 18:38:45 / team-nesi

tilkynning!

 

heyriði, ég vildi bara benda ykkur á að græna illgresið sem við þekkjum öll mjög vel heitir víst elfting (borið fram 'elting' ), ekki elding eins og við töluðum nú um :). ég biðst forláts á að hafa afvegaleitt ykkur með þessum leiðu mistökum mínum og vona að þið séuð ekki verri manneskjur fyrir vikið.

annars er allt að komast á hreint með lokadæmið okkar, þakkið karitas.


» 15 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 23:45:30 / team-nesi

jæja!

 

ókei, þeeeetta gengur ekki lengur .. krakkar hvað langar ykkur að gera? mig allavegana langar alveg að gera eitthvað áður en það koma jól (y) hehe, en ykkur?

mér fyndist allavegana fínt að fara kannski á fjórhjól uppí sveit og svo fara heim og krummi var víst búinn að segja að hann ætlaði að grilla eða eitthvað? og svo borða eitthvað gott eftirá og .. gera svo eitthvað eftir það? humha ;p nenniði að segja í 'skoðanir' hvað ykkur langar og finnst? (: koma með huugmyndir eða eitthvað ;]

karitas 


» 42 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 18:31:30 / team-nesi

jáá

haha

 

Svo það varð ekkert úr þessu, það er ekkert of dýrt í að fara í þetta, 6800kr?

iss, kommon við vorum í bæjarvinnunni, við ættum að ná að borga þetta ;)


» 15 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 20:33:08 / team-nesi

jájá

Vill þakka fyrir góða tíma í bæjó,

Er planið að fara á fjöruferðir? :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 20:33:59 / team-nesi

Ble

Ble

 

vildi einmitt benda á það að þessi síða er frekar down, en hún er það ekki skal ég segja ykkur,

í dag var flippað útí rauðann dauðann,

takk fyrir mig.

Andri.G


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 00:37:18 / team-nesi

Team-Nesi eins og hann leggur sig!

Team-Nesi

Myndarlegasti, gáfaðasti og síðast en ekki síst: duglegasti hópur í sögu bæjarvinnu Hornafjarðar - Team-Nesi.

Karítas ætlar að setja myndirnar sem voru teknar þann 11/07 á næstunni. Ætli ég hendi ekki inn blogfærslu í kjölfarið. Veriði ýkt tilbúin.

PS: Sævar - já þið lásuð rétt - var starfsmaður vikunnar (ásamt Ingva sem var það í annað skiptið!) og síðan var enginn ömsi vikunnar. Allir svo duglegir.


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 12:33:46 / team-nesi

Vinnusaga dagsins ..

Sælir!

Dagurinn í dag var eins og þeir gerast bestir hjá Team-Nesa. Í fyrsta lagi unnu allir merkilega vel; tókum upp svona hálft tonn af njóla bakvið júllatúnið úti við sjóinn. Í öðru lagi fundum við uppá mega nettum leik sem við eyddum reyndar öllu kaffinu okkar í.

Leikurinn virkaði þannig að allir fóru í "Skæri, blað, steinn" þangað til að það var einn sem stóð uppi sem ömsi og sá hinn sami gekk "plankann" en þá hentu allir steinum í sjóinn þannig að það skvettist á viðkomandi....ví:

Mist ömsinn...

Þar sem einhverjir eru alveg lélegir í "Skæri, blað, steinn" þá gengu sumir frekar oft plankann (Andri G. 7x, Sævar 5x) en aðrir aldrei (krumminn, Ingvi, Freyr).

Þegar kaffinu var lokið ákváðum við að láta hendur standa fram úr ermum og eftir 45 mín. var allur njóli horfinn og í staðinn hafði myndast stórt og myndarlegt "njólatré":

Þá átti nú bara eftir að setja helvítis njólann í poka en þá hafði krummanum orðið á þau leiðu mistök að hann hafði gleymt pokunum uppí skúr. Við rákumst hinsvegar á hann Bjössa en hann átti einungis 4 poka! Nú var Team-Nesa vandi á höndum, en líkt og alltaf reddaði krumminn málunum og sagði að ef þau gætu komið öllum haugnum í 4 poka myndi hann hlaupa útí sjó og útá einhverja ömsaða eyju. Krumminn var reyndar meira að grínast með þetta en ekki, en Team-Nesi tóku hann aldeilis á orðinu:

Ömsi

Krumminn lagður af stað...

Og kominn útí eyjuna góðu!

Krumminn hljóp síðan til baka eins og hann hafði lofað og varð það sem einhver kallaði rennblautur.

Núna þarf reyndar krumminn að fara aftur í vinnuna en hann mun setja afganginn af myndunum inn á eftir þannig að ekki örvænta.

krumminn át!

PS: Var að setja inn afganginn af myndunum, þær er að finna þarna neðst undir "Myndirnar".


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 19:05:08 / team-nesi

raisin in the hotdog finishline!

Já , Andri hérna, verð allveg örugglega að Blogga um lífið hér í bæjar vinnunni en ég hef ákveðið að taka hendurnar úr vösunum og byrja blogg, þetta er semsagt fyrsta almenninlega bloggið hér í netheimi team-nesa sem pvt, Eða óbreyttur hermaður kemur með og get ég lofað ykkur því að endirinn á blogginu verði of flippaður!

En alvega, við kvikindin í team-nesa, við fórum öll og vöknuðum og fengum okkur ábyggilega Cherios, nema Jóhann Árni og svo endaði sú máltíð hjá sævari knút í COD2 ef ég þekki hann rétt,

Við Hittum krumma litla, hann varð indæll og skutlaði okkur útí Apótek, við fórum að vinna , ég með Rune Pickaxe, og eithvað, og svo fór sævar inní apótekið og keypti sér hákarlatyggjó og eithvað , flippað tyggjó.

ÆJ vá, ég neni ekki að blogga um daginn skal ég segja ykkur.

 

En vill svo minna á skoðunar könnunina, Skills, og Slúður.

allvega ég ætla vera mjög virkur í að updata skillsin mín, þetta 03 Stendur fyrir 3 júlí bara svo þið vitið og bið ykkur vinsamlega um að gera ykkar skills, Ekkert kjaftæði samt, Sumir í hópnum halda að þeir geta sett í eithvað lvl 99 strax8| en neeeeei. það er ekki hægt, það þarf að telja þau frá upphafi, byrjið núna,

Svo er bannað að æfa sig heima. :haha:

svo ég nenni ekki að hafa þetta langt,

ætla enda þetta á nokkrum orðum! sem þið fattið fara með því að nota baunina inda beanhouse

 

A cat in a Swamp puted on his steering wheel outside is an Adventure!

 

Andri.G


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 17:07:05 / team-nesi

MHM

Fullt nýtt leitiði þangað til að þið finnið það,

Endilega Commentiði ef eitthvað fyrir brjósti ykkar.

Andri G

PS: Starfsmaður vikunnar var Ltd. Mist og ömsi vikunnar var Pvt. Karítas. Núna geta Sóley Tómasdóttir og aðrir femínistar hætt að væla (b.t.w. ekki tala um þetta við Karítas, hún tók þessum titli mjög illa :().

PS2: Veðurspáin fyrir næstu daga er ansi ömsuð, verið viðbúin!

- edit: krummi. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 17:21:44 / team-nesi

Vefsíðustríði hópanna lokið

Góðan dag!

Dagurinn í dag er merkilegur fyrir margar sakir: Í fyrsta lagi hefst hin margrómaða Humarhátíð okkar Hornfirðinga, sem bæjarvinnan hefur að sjálfsögðu undirbúið seinustu daga með glæsibrag. Í öðru lagi lauk vefsíðustríði hópanna opinberlega í dag, fallið var þó gríðarlegt. Öllu eytt af báðum síðunum. Eruð þið fífl?

Þar sem ég er nú forsjár með meiru sá ég strax hvað í stefndi og tók backup af mest allri síðunni og er ég búinn að setja það backup aftur inn, eins og kannski sést. Það lítur hins vegar út fyrir að síðan hjá team-tuma muni aldrei verða söm.

Annars ætlaði ég bara að henda inn færslu hérna til að benda á eftirfarandi:

Vegna Humarhátíðar megið þið mæta í ruslatýnslu klukkan 9:00 útá vigt (vigtina á Höfninni). Hvet alla til að mæta enda miklir peningar í boði.

PS: Karítas er hjátrúafull (lesist vangefin):

jáok

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 17:05:17 / team-nesi

Óömsaðasti banner í heimi

Eins og sumir hafa tekið eftir hefur verið settur inn nýr og glæsilegur banner sem gaurinn Andri G. gerði og við erum öll svaka stolt af.

Freysi kveður :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 17:03:58 / team-nesi

Vildi bara benda á...

Gott kvöld aftur.

Þið verðið að fyrirgefa hve ofuraktívur á blogginu ég er. Ég bara hreinlega varð að benda á að vinir okkar í hópi #5 (Team-Tumi & Elli) voru að setja upp skoðanakönnun á bloggið sitt. Þið vitið vel hvern kjósa skal (ef þið kjósið mig ekki þurfið þið að hlusta á Nesa þylja ættartré sitt upp um þrjá ættliði).

krumminn át!


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 17:00:24 / team-nesi

Flokkstjóra-ömsi ársins

Gott kvöld.

Flokkstjóra ömsi ársins var krýndur í gær, viðkomandi átti þátt í óhappinu hér að neðan.

hi

Sælir!

PS: Hópurinn TEAM-Nesi kom hvergi nálægt þessu slysi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 16:57:24 / team-nesi

TEAM-Nesi er mætt!

Góðan dag.

Þetta ku vera fyrsta bloggið á vefsvæði hornfirska bæjarvinnuhópsins "TEAM-Nesi". Eins og gefur auga leið er þessi síða einnig mikil straumhvörf í bloggmenningu okkar Íslendinga og mun væntanlega koma til með vera skráð á spjöld blogg-sögunnar.

Ég ætla nú ekki að vera langorður en ef einhverjir foreldrar eru að lesa þetta þá er undirritaður, flokkstjórinn, ekki að reyna að troða neinum af eftirfarandi skoðunum uppá undirmenn sína: andkommúnisma, vantrú á yfirnáttúru, vantrú á kjaftæði né slæmum venjum (habits).

Með keðju,
Gen. Hrafn Eiríksson.

PS: Starfsmaður vikunnar var Ingvi og ömsi vikunnar var Freyr.


» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill